|
|
26.01.2012 14:41:04 / fram8fl
Jóna þjálfari er í gipsi og á hækjum og mun því Runólfur Trausti (þjálfari 3.fl kk) koma í hennar stað í dag, ásamt Söru Lissy.
Það er búið að vera svolítið um hringl á þjálfurum eins og fyrir jól, þar sem að Jóna var útá landi í veikindafríi og ég er alltaf bara annan hvern fimmtudag, á móti Söru Lissy sem tekur hinn. Biðjumst við velvirðingar á þessu. Einnig vil ég minna á að nú þurfa allir að skrá börn sín inná Nora-kerfið, það eru mörg börn sem hafa æft síðan í haust sem eru ekki enn skráð inní kerfið. Tekur nokkrar mínútur  http://www.fram.is/Knattspyrna/Yngriflokkar/Idkendaskraning/
Kær kveðja Elísabet Sara þjálfari
»
02.01.2012 21:28:46 / fram8fl
Við viljum byrja á því að óska ykkur öllum gleðilegs nýs árs og þakka fyrir það liðna 
Æfingar í Álftamýraskóla byrja miðvikudaginn 4. jan og verða þær á sama tíma og áður, kl. 17:00. Æfingar í Ingunnarskóla byrja fimmtudaginn 5. jan og verður hún á sama tíma, 17:15.
Hlökkum til að sjá ykkur Kv Jóna og Sara
»
01.12.2011 15:30:08 / fram8fl
Ég (Jóna Ólafsdóttir) þurfti því miður að fara óvænt austur á Seyðisfjörð í veikindaleyfi þar til fram yfir áramót. Í staðinn fyrir mig kemur Stefanía Pálsdóttir sem er einnig leikmaður í mfl kvk.Æfingar fram að jólum eru því svona:
Safamýri - 7. og 14. des - þjálfarar eru Elísabet Sara og Stefanía.
Grafarholt - 1., 8. og 15.des þjálfarar 1.des eru Sara lissy og Stefanía þjálfarar 8.des eru Elísabet Sara, Sara Lissy og Stefanía þjálfarar 15.des eru Sara Lissy og Stefanía
Síðustu æfingu fyrir jól verðum við með foreldrabolta. Þá taka foreldrarnir þátt í æfingunni við mikinn fögnuð ungra leikmanna, spila á móti þeim og taka vítaspyrnukeppni við þau. Foreldraboltinn verður þá 14.des í Safamýrinni og 15.des í Grafarholtinu.
Einnig viljum við minna alla foreldra á að það þarf að skrá börnin sín í Fram. Það er gert í gegnum skráningar/greiðslukerfið NORA og má finna inná þessum link: Það verða ekki sendir út greiðsluseðlar og er það ykkar foreldranna að skrá barnið, en ef það er ekki skráð í félagið getur það ekki tekið þátt í mótum á vegum þess. Þetta tekur enga stund 
Bestu kveðjur, Jóna og Sara.
»
14.10.2011 15:01:49 / fram8fl
Knattspyrnudeild Fram heldur hina árlegu uppskeruhátíð sína miðvikudaginn 19. október kl.17.30 í Íþróttahúsi Fram við Safamýri. Nokkrir leikmenn yngri flokka verða heiðraðir, allir leikmenn yngstu flokka 8, 7 og 6 fá viðurkenningu, Eiríksbikarinn verður afhentur fyrir mestar framfarir, og Framdómari ársins útnefndur.
Veitingar verða að sjálfsögðu glæsilegar, eins og alltaf á uppskeruhátíðum deildarinnar. Allir knattspyrnumenn Fram eru boðnir velkomnir á hátíðina, svo og fjölskyldur þeirra. Foreldrar eru sérstaklega hvattir til að koma með börnum sínum. Kærar kveðjur Stjórn Knattspyrnudeildar FRAM
»
15.09.2011 12:45:38 / fram8fl
Kæru foreldrar og forráðamenn ungra Framara Þann 1. október næstkomandi hefjast æfingar á ný hjá okkur hjá Knattspyrnudeild Fram. Framundan eru tímamót fyrir Framara þar sem við munum taka í notkun nýtt æfingasvæði í Úlfarsárdal. Með þessu er óhætt að segja að bjartir tímar séu framundan. Undirbúningur hefur verið í fullum gangi og verður gervigrasið lagt um miðjan septmber. Búið er að reisa tímabundið húsnæði fyrir félagsaðstöðu og búningsklefa. Þar mun verða ráðinn til starfa húsvörður auk þess sem Daði mun flytja skrifstofu sína þangað. Æfingarnar verða að sjálfsögðu áfram á báðum stöðum þ.e. í Safamýrinni og í Grafarholti. Skráningardagur Knattspyrnudeildarinnar verður 17. september á milli kl. 10 og 13 bæði í Safamýri og í Grafarholti og ætlum við að vera í Sæmundarskóla J. Þá gefst ykkur foreldrar og forráðamenn gott tækifæri til að koma með börnunum ykkar og hitta þjálfara og starfsmenn FRAM, kynna ykkur starfsemi vetrarins og síðast en ekki síst fengið aðstoð við nýja skráningarkerfið okkar NORA. Athugið að greiðsluseðlar verða ekki sendir út framvegis; heldur verða foreldrar að ganga frá greiðslufyrirkomulag í gegnum NORA. Sjá nánari upplýsingar hér fyrir neðan. Það er einlæg ósk okkar að sem allra flestir sjái sér fært að mæta og gera þennan dag gagnlegan og gleðilegan. Boðið verður uppá vöfflur og kaffi einnig verðum við með til sölu og sýnis nýjan æfingafatnað sem hentar vel fyrir útiæfingar. Foreldrastarf er gríðarlega stór þáttur í uppbyggingu og aðhaldi innan íþróttafélaga og er það margsannað að sterkur, kraftmikill og jákvæður foreldrahópur skilar sér í metnaðarfullu og góðu íþróttastarfi. --------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------- NORA – Skráningar og greiðslukerfi Hægt er að greiða með Frístundakorti í gegnum NORA. Við viljum ítreka að allir verði að ganga frá skráningu og greiðslufyrirkomulagi hvort sem barnið hefur verið að æfa eða ætlar að byrja að æfa hjá Fram. Ætlast er til að búið sé að ganga frá skráningu áður er en æfingar hefjast og er skráning á ábyrgð foreldra og forræðismanna. Kjósi barn að hætta innan mánaðar þarf ekki að greiða æfingagjöld. Slíkt aðlögunartímabil er heimilt einu sinni á ári. -------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------- Æfingatímar og þjálfarar Nú er búið að ganga frá ráðningu á þjálfurum í öllum flokkum. Æfingatöflur verða settar á heimasíðu FRAM á föstud. Þjálfarar verða sem hér segir: 3. flokkur karla: Lárus R Grétarsson / Runólfur Trausti Þórhallsson til aðstoðar 3. flokkur kvenna: Magnea Magnúsdóttir 4. flokkur karla: Lárus R Grétarsson, Vilhjálmur Þ Vilhjálmsson og Vigfús Geir Júlíusson 4. flokkur kvenna: Magnea Magnúsdóttir / Júlíus G. Guðmundsson til aðstoðar 5. flokkur karla: Halldór Örn Þorsteinsson og Vilhjálmur Þór Vilhjálmsson 5. flokkur kvenna: Magnea Magnúsdóttir 6. flokkur karla: Vigfús Geir Júlíusson og Steinar Þorsteinsson 6. flokkur kvenna: Sigurður Arnar Hermannsson og Jóna Ólafsdóttir 7. flokkur karla: Steinar Þorsteinsson og Vigfús Geir Júlíusson 7. flokkur kvenna: Sigurður Arnar Hermannsson og Jóna Ólafsdóttir 8. flokkur: Elísabet Sara Emilsdóttir og Jóna Ólafsdóttir. Fagráð: Aðalsteinn Aðalsteinsson, Halldór Örn Þorsteinsson og Lárus R. Grétarsson. Það er okkur mikil ánægja að bjóða alla þessa þjálfara velkomna til starfa. Markmið okkar er að byggja upp sterka og framúrskarandi hópa og einstaklinga gera þá hæfari til að takast á við verkefni framtíðarinnar hvort sem er innan vallar eða utan. Hlökkum til að sjá ykkur öll og hefja nýja fótboltavertíð saman J Kveðja, Stjórn Knattspyrnudeildar Fram
»
13.08.2011 22:12:15 / fram8fl
Sæl öll.
Mér þykir leiðinlegt að tilkynna ykkur að ég mun víst ekki mæta til móts með ykkur á morgun, ég sleit hásin í leik í dag og var send beint í aðgerð í fyrramálið og mun því ekki komast. Þar að auki er Jóna veik og stödd útá landi sökum þess.
Áslaug og Hulda (liðsstjórinn hjá okkur í mfl kvk  ) ætla að mæta með búninga og góða skapið í fyrramálið fyrir okkar hönd, sem vonandi geta hjálpað til út mótið við að kalla inná og hvetja, sem og reyna að passa uppá að allir fái að spila jafn mikið. Þið foreldarnir hjálpið þeim kannski við það
Símanúmerin þeirra eru Áslaug: 775-2842 og Hulda: 615-0164
Við vonum að allir hafi gaman af mótinu þó smá á móti blási hjá þjálfurunum þessa dagana, og óskum ykkur góðs gengis. Hlökkum til að sjá ykkur næst.
bestu kveðjur, Sara og Jóna
»
11.08.2011 22:55:46 / fram8fl
Dagana 8-19 ágúst verður haldið knattspyrnunámskeið á æfingasvæðinu í Leirdal í Grafarholti.
Þetta er tveggja vikna námskeið og er verðið 7000. kr hægt er þó að velja aðra vikuna og kostar það 4000 kr. Kennarar verða Steinar Ingi og Vigfús Geir Námskeiðið stendur frá 09:00 -11:45 alla virka daga nestistími er um 10:15. Mótið nefnist heimsmeistaramótið og er aðaláherslan á spil og létta leiki. Skráning fer fram á th143@hi.is" style="color: rgb(0, 0, 204); ">sth143@hi.is eða í síma 847-3108
Vonandi sjá sér e-rjir sér fært að mæta
»
11.08.2011 22:42:25 / fram8fl
Til að byrja með viljum við Jóna biðja Safamýrargengið okkar innilega afsökunar á villu á bloggfærslunni hér að neðan. Þar hafði e-ð farið úrskeiðis hjá okkur og aðeins kom fram tími á æfingu fyrir Grafarholtið, með þeim afleiðingum að fáir mættu á þriðjudagsæfinguna og nokkrir komu í fýluferð á miðvikudeginum. Við vonum að þetta komi ekki fyrir aftur.
En að máli málanna - Atlantis-mótið um helgina ! Við sóttum um A,B og C lið en fengum B,C, og D-lið þannig þau verða kölluð það til að minnka rugling 
Lið-B: Alexander, Aron, Árni Dagur, Birkir Jakob, Mikael Trausti, Reynir Þór.
Lið-C: Addi, Hafsteinn Esjar, Kristján Eide, Nikulás, Óliver, Tómas Theodór.
Lið-D: Almar Daði, Arnar Hrafn, Daníel, Vigdís Karólína, Vignir Valur, Viktor Smári.
Þátttökugjald á mótinu er 1500 kr. og væri mjög vel þegið ef foreldri úr hverju liði myndi bjóða sig fram hér í komment til að safna saman greiðslum þegar komið er á staðinn og sjá um að fara með til gjaldkera. Þetta er hálfsdagsmót; C lið spilar fyrir hádegi, B og D-lið eftir hádegi. Leikjaplanið í heild sinni má sjá hér: http://afturelding.is/iw_cache/2491_Atlantis2011_8_barna.pdf
C-lið: fyrsti leikur kl. 09:00 á velli 7, mæting við völlinn 20 mínútur í. B-lið: fyrsti leikur kl. 13:00 á velli 5, mæting við völlinn 20 mínútur í. D-lið: fyrsti leikur kl. 13:30 á velli 6, mæting við völlinn 13:10.
Allir eru sigurvegarar á mótinu og fá medalíu og frítt í sund. Atlantis Group býður þar að auki uppá Sashimi veislu á staðnum með sérinnfluttum túnfiski og japönskum matreiðslumeistara. Jóna verður frá í smá tíma núna vegna veikinda, en Áslaug verður með okkur á mótinu í hennar stað  Símanúmerið mitt er gott að hafa meðferðis (ef þið finnið ekki völlinn .. e-ð svoleiðis) - 848-1858. Sjáumst hress á Sunnudaginn! 
»
04.08.2011 20:26:24 / fram8fl
Þá er það komið á hreint að 8. flokkur spilar á sunnudeginum 14. ágúst. Við skráðum 3 lið til keppni og er því ennþá hægt að skrá sig hér í komment. Það er ekki alveg komið á hreint hvort við séum fyrir eða eftir mat, en það kemur vonandi fljótlega í ljós. Það kostar 1500 krónur fyrir hvern leikmann. Hér getið þið svo séð helstu upplýsingar um mótið - http://afturelding.is/?ib_page=362&iw_language=is_IS
kær kveðja Jóna og Sara þjálfarar
»
20.07.2011 22:10:00 / fram8fl
Nú er sumarið rúmlega hálfnað og margir komnir í sumarfrí. Æfingar hjá 8.flokk í dag og í gær voru því fámennar en það voru síðustu æfingar fyrir svokallað KSÍ-frí sem er hjá öllum yngri flokkum í knattspyrnu, en það er alla næstu viku og um verslunarmannahelgi. Það þýðir að það er frí á æfingu þriðjudag 26. og miðvikudag 27. júlí, og þri 2. og mið 3.ágúst. Næsta æfing er 10. ágúst ! Hlökkum til að sjá ykkur þá 
Annað mál á dagskrá er Atlantismótið helgina 13. og 14.ágúst. Við Jóna erum í smá vandræðum þessa helgina vegna þess að við eigum sjálfar leik 13.ágúst, og höfum verið að bíða eftir svörum frá þeim sem sjá um Atlantismótið um tímasetninguna. Þeir hafa nú sagt að það komi ekki í ljós strax þannig að við höfum nú sótt um að fá 4 lið inn og verðum að vona að þetta verði ekki á laugardeginum.
Ef svo færi að leikirnir yrðu þarna á laugardeginum þyrftum við að semja við ykkur foreldrana um að sjá um leikina.
Vinsamlegast skráið ykkur hér í kommentum ! 
Hafið það gott í fríinu, Sara og Jóna
»
06.07.2011 08:31:33 / fram8fl
Á æfingunni í dag, miðvikudaginn 6.júlí verðum við Jóna með 6.flokkinn okkar á móti í Grindavík og verða því Áslaug og Sigga Kata með æfinguna  Hún er kl. 17 í grafarholti í dag, góða skemmtun !
»
31.05.2011 15:31:30 / fram8fl
Sæl öll. Til að byrja með viljum við óska ykkur til hamingju með árangurinn á VÍS-mótinu. Krakkarnir stóðu sig eins og hetjur og við þjálfararnir vorum alveg í skýjunum yfir árangrinum og þeim framförum sem þau hafa tekið  Alltaf gaman að taka þátt í svona móti eins og þessu og auðvitað er aldrei leiðinlegra að vinna nokkra leiki.
Í sambandi við næstu æfingu, þá er uppstigningardagur næsta fimmtudag og er því FRÍ hjá 8.flokk (grafarholtsbörn). Vikuna eftir það hefst sumarprógrammið hjá okkur.
Hjá Grafarholtsbörnum: Æfingar verða á miðvikudögum í sumar frá kl. 17-18 í Leirdalnum. Næsta æfing verður þar miðvikudaginn 8.júní.
Hjá Safamýrarbörnum: næsta æfing á morgun miðvikudag 1.júní á gervigrasinu á Framvelli eins og undanfarið. Eftir það hefst svo sumarprógram og færast æfingar yfir á þriðjudaga kl. 17-18. Fyrsta þriðjudagsæfing verður 7.júní.
Bestu kveðjur, Sara og Jóna þjálfarar
»
27.05.2011 01:47:33 / fram8fl
Hér koma nánari upplýsingar fyrir VÍS-mótið um helgina.
Mótið hefst kl. 08:00 á laugardagsmorgun og er því mæting hjá öllum kl. 07:40 í þróttaraheimilið. Hvetjum við ykkur til að reyna eins og þið getið að vera stundvís því að ef leikmenn mæta ekki á réttum tíma í leik þá dregst það af spiltímanum samkvæmt reglum Þróttar.
Liðin eru svona:
A1: Hjalli, Jökull, Kristján Eide, Mikael Trausti, Nikulás, Reynir Þór, Valur Kári. A2: Addi, Alexander, Aron, Árni Dagur, Birkir Jakob, Eysteinn, Stefán. B1: Eggert, Egill Máni, Davíð, Hafsteinn, Hjalti G, Vigdís, Viktor Smári.
Þar sem að ekki er foreldraráð í 8.flokki þurfum við á aðstoð ykkar foreldra að halda til að halda utanum greiðslur á mótinu. Við þurfum að biðja einn foreldra úr hverju liði að sjá um að taka við greiðslu fyrir börn í því liði. Það þarf að vera búið að skila inn greiðslu hjá gjaldkera á skrifstofu eigi síðar en klukkutíma eftir að leikar hefjast, þar verða afhentir pizzumiðar. Ef e-rjir væru svo góðir að gefa sig fram strax hér í kommentum þannig að við getum haft nafn og símanúmer væri það frábært  Kostnaðurinn er 1500 á haus, svo bætist við staðfestingargjald á lið sem er 3500 og deilist á fjölda barna í hverju liði. Það eru 7 í hverju liði þannig að kostnaðurinn við mótið er 2000 krónur á haus og teljum við að best sé að hafa með sér 2000 kr. í lausu.
Við mælum með því að renna í gegnum upplýsingar á þessari slóð hér: bara til þess að allir séu með á nótunum hvað varðar pizzusölu, skemmtidagskrá, verðlaunaafhendingu o.fl.
Við viljum biðja alla þá sem eiga legghlýfar og FRAM-treyju að taka það með, en við munum vera með einhverjar treyjur fyrir þá sem ekki eiga. Umfram allt viljum við minna alla á að taka með sér góða skapið og morgunferskleikann og brýna fyrir börnunum að það þarf ekki alltaf að sigra til að hafa gaman Eftir mótið eða kl. 12:20 hefst svo skemmtidagskrá sem allir eru hvattir til að mæta á. Ingó veðurguð skemmtir.
Annað mál á dagskrá um helgina, á sunnudeginum 29.maí sem við mælum eindregið með að kíkja á ef þið hafið tíma
---------------------------------------------- Í Laugardalnum fyrir leik Fram - KR 29. maí. MÆTING KL. 18:10 Tækniskóli KSÍ – Heimsókn og gjöf frá KSÍ tilfélaganna /> Kæru Framarar. /> Þann 29 maí næstkomandi munu landsliðsmenn,landsliðskonur og landsliðsþjálfarar frá KSÍ heimsækja okkur og gefa öllumiðkendum 16 ára og yngri nýjan og vandaðan DVD disk sem nefnist Tækniskóli KSÍ. /> Markmiðið með disknum er að efla knatttækni komandiknattspyrnukynslóðar, hvetja til aukaæfinga, jákvæðrar hreyfingar og vekjaathygli á heilbrigðum fyrirmyndum í A-landsliði karla og kvenna og í U-21 árslandsliði karla. Leikmenn úr landsliðunum og landsliðsþjálfarar heimsækja okkurog afhenda iðkendum diskinn beint í hendur þeirra milliliðalaust. /> Það er einlæg ósk KSÍ og Knattspyrnudeildar Framað komandi knattspyrnukynslóð Fram taki vel á móti fulltrúum KSÍ í þessu göfugaverkefni. Við treystum á góða samvinnu við foreldra, forráðamenn og iðkendurtil að þetta geti allt farið vel fram. ----------------------------------------------- Ef það eru e-rjir sem vita að þeir komast ekki á sunnudaginn geta beðið mig og Jónu um að taka frá einn disk fyrir sig sem við getum komið til skila á næstu æfingu, en að sjálfsögðu er skemmtilegra að fá þetta beint úr höndunum á landsliðsmönnum/konum Með skrifkrampa og fótboltakveðju,
Sara og Jóna þjálfarar.
»
19.05.2011 15:55:38 / fram8fl
Við vorum að fá frettir frá mótshöldurum VÍS-mótsins að viðerum komin inn ef við höfum enn áhuga.
Þar sem nú er lítill fyrirvari og eflaust e-rjir búnir að ráðstafa sér gerumvið ekki ráð fyrir að allir komist, en við viljum endilega fara með þá sem hafaáhuga og tíma.
Við skráðum nokkra á safamýrar-æfingu í gær, og munum skrá þá sem vilja áGrafarholtsæfingu á eftir. Einnig getiði skráð ykkur hérna á síðunni ef þiðvoruð ekki á þessum æfingum, skiljið endilega símanúmerið ykkar með bara svo aðvið höfum e-rjar upplýsingar Mótið fyrir 8.flokk er á laugardeginum 28.maí, það er hálfurdagur sem fer í þetta, vitum ekki hvort þetta yrði fyrir eða eftir hádegi. Þátttakaá haus verður ca 1700 á mann (þátttökugjald og staðfestingargjald sem deilist áfjölda þátttakenda). Við setjum inn nánari upplýsingar í næstu viku þegarskráning verður tilbúin. Á þessari slóð má finna frekari upplýsingar: http://www.trottur.is/index.php?option=com_content&view=article&id=2599:vis-motie-upplysingar&catid=132:mot&Itemid=362 Aðrar fréttir eru þær að Grafarholtsbörn hafa nú einnigflutt sig út, nú fara æfingar fram á sama tíma á sparkvellinum við Ingunnarskóla (viðhliðina á kirkjunni). Við forum svo á alvöru gras í júní þegar grasið verður tilbúið Bestu kveðjur Jóna og Sara þjálfarar. />
»
29.04.2011 13:03:42 / fram8fl
Því miður fengum við ekki inni á Vís-mótið í ár vegnaliðatakmarkanna. Í staðinn ætlum við að reyna að koma á æfingaleik eða litlumóti við eitthvað annað lið og erum nú að bíða eftir svörum frá öðrum þjálfurum.Við vonum að það sé e-r til í að spila við okkur og látum inn upplýsingar umþað þegar þar að kemur Fréttir fyrir safamýrarbörn: Nú um mánaðarmótin lokar íþróttahús Álftamýrarskóla og þáverðum við að færa æfingar sem voru þar yfir á stóra gervigrasið í Safamýri. Þetta var því síðasta æfingin inni síðasta miðvikudag(27.apríl)og verður næsta æfing miðvikudag 4.maí ÚTI kl. 17:00. Ef þið þurfið klefa þá verður það í boði inní Safamýri, en við mælum alveg eins með því að koma bara klædd/ur - nú þarf að klæða sig eftir veðri  Við biðjumst velvirðingar á stuttum fyrirvara, en við fengum fréttir af þessu fyrir síðustu æfingu. kv. Sara og Jóna />
»
Síður: 1 2
|
Heimsóknir
Í dag: 290 Alls: 40556
|